Er kominn tími á trjáklippingar / vetrarklippingar?
Er kominn tími á trjáklippingar / vetrarklippingar?
Kalt hitastig og kaldir vindar gera okkur hikandi við að fara út í garðana okkar til að sinna reglulegu viðhaldi eins og trjáklippingum á veturna. Engu að síður, er veturinn auðveldasti tíminn til að klippa tré og runna. Án laufskrúðans sést skýrari lögun og uppbygging trésins ásamt öllum þeim runnum sem þarf að klippa.. Veiklulegar eða brotnar greinar er auðveldara að koma auga á og fjarlægja. Eins er hæglegra um vik að klippa greinar sem vaxa þvert á heildar vaxtarmynstur trésins. Síðustu dagar hafa verið kaldir og margir með talsverðum mínustölum sem er gott veganesti til að byrja á trjáklippingum á stökum trjám og runnum.